Monday, January 11, 2010

Hér endurpósta ég hluta úr gamalli færslu frá mér, um shiraz þrúguna. Lítillega breyttri. Ekki veit ég af hverju. þar sem þetta er ekkert sérstaklega vel skrifað hjá mér.

"
shiraz þrúgan hefur þetta smávægilega kikk í bragðinu- kryddað vín. það minnir þig á þessa rómantísku stund sem þú áttir í costa rica með Gitana Dulcinea de Esperanza. þú hittir hana á hótelbarnum þar sem hún var að selja dauðar rósir og skákmenn úr brúnum pappírspoka. þið dönsuðuð alla nóttina. þér fannst eins og þetta væri rangt, en samt er þetta svo rétt. handfylli af shirözum seinna og þú ert einn með henni á ströndinni. þarna liggur þú og hlustar á fjarlægt hljóð þar sem ungur bóndasonur glímir við apa, og hún byrjar að afklæða sig. en klukkan er orðin margt og þú þarft að vakna snemma til að mæta í fjárhagsbókhaldsnámskeið, svo þú þakkar henni fyrir ánægjulega kvöldstund og óskar henni og sígaunaþorpinu hennar velfarnaðar í komandi faraldri."

0 Comments:

Post a Comment

<< Home

Blog tracker